Greta Salóme & Jónsi
Текст песни Mundu Eftir Mér

Добавьте этот текст песни в ваш персональный список песен.

Текст песни Greta Salóme & Jónsi - Mundu Eftir Mér

Syngur hljótt í húminu
Harmaljóð í svartnættinu
Í draumalandi dvelur sá
Sem hjarta hennar á

Hann mænir út í myrkrið svart
Man þá tíð er allt var bjart
Er hún horfin, var það satt
Að ástin sigri allt?

Og seinna þegar sólin vaknar,
Sameinast á ný
Þær sálir tvær sem áður skildu,
ástin veldur því

Mundu eftir mér þegar morgun er hér
Þegar myrkrið loks á enda er
Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
Og ég trúi því að dagur renni á ný

Minnist þess við mánaskin
Mættust þau í síðasta sinn
Hann geymir hana dag og nótt
Að hún komi til hans skjótt

Og seinna þegar sólin vaknar,
Sameinast á ný
Þær sálir tvær sem áður skildu,
ástin veldur því

[2x:]
Mundu eftir mér þegar morgun er hér
Þegar myrkrið loks á enda er
Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
Og ég trúi því að dagur renni á ný

Því ég trúi því að dagur renni á ný
Já, ég trúi því að dagur renni á ný

Поиск текстов

Ваш личный список песен:

Для быстрого перехода к нужной песне вы можете добавлять в этот список любые тексты песен. Данный список автоматически сохраняется на вашем компьютере.